Gunnar Nielsen
Útlit
Gunnar Nielsen (16. september 1914 – 18. maí 1989) var skrifstofustjóri Hitaveitu Reykjavíkur og formaður Knattspyrnufélagsins Fram.
Ævi og störf
[breyta | breyta frumkóða]Gunnar fæddist í Kaupmannahöfn og var fjölskylda hans á faraldsfæti milli Danmerkur, Íslands og Bandaríkjanna mest öll æskuár hans. Hann varð snemma gallharður Framari og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir félagið. Gunnar var í fyrsta meistaraflokksliði Fram í handknattleik, sem keppti á fyrsta Íslandsmótinu árið 1940. Lét hann sig ætíð sérstaklega varða uppbyggingu handknattleiksins innan Fram og kom talsvert að þjálfun.
Hann var formaður Fram árin 1949-50 og 1952-53. Á sextíu ára afmæli félagsins, árið 1968, var hann útnefndur heiðursfélagi Fram.
Fyrirrennari: Jón Þórðarson |
|
Eftirmaður: Guðni Magnússon |
Fyrirrennari: Sigurbergur Elísson |
|
Eftirmaður: Sigurður Halldórsson |